Færslur: 2012 Janúar

29.01.2012 11:41

Oddeyrin EA 210

Togarinn Oddeyrin hélt til veiða frá Akureyri í gærdag smellti af nokkrum myndum.Skipið landaði á Akureyri sínum fyrsta túr og var aflaverðmæti um 130 milljónir.Síðasta ár gekk mjög vel hjá þeim voru þeir með aflaverðmæti yfir 2 milljarða sem er mjög gott.






28.01.2012 10:31

Eyborg ST 59

Rækjutogarinn Eyborg hélt til veiða frá Akureyri í gærdag en skipið hefur legið við bryggju frá því fyrra.
Voru skipverjar að græja skipið í gær þegar að ég átti leið um.Rak ég upp stór augu er ég mætti Þorgeiri Bald einum fremsta skipaljósmyndara landsins þar um borð.Tjáði Þorgeir mér að hann væri kominn heim aftur um borð í Eyborguemoticon.

Eyborg ST 59


Kóngurinn Mættur.


Hér skal sko tekið á því að poka rækju.


Löng er hún 


Klár í slaginn og fær góðar kveðjur.

27.01.2012 16:21

Norma Mary






Frystitogarinn Norma Mary kom til hafnar á Akureyri í gær eftir miklar endurbætur.Skipið var lengt um 14 metra og sett í það ný aðalvél.Skipið mun vera á Akureyri í einhvern tíma þar sem fiskvinnslu búnaður verður settur um borð.Er það samdóma álit okkar Binna Arnars að þeir sjást ekki svona flottir á stakksfirði en það er nú meira grín en í allvöru sagt.

18.01.2012 12:44

Löndun á Neskaupstað.

                                                                     ©Siggi Davíðs
Björgvin EA-311 við bryggju á Neskaupstað En skipið landaði sínum 3 túr á þessu ári.Björgvin hefur verið við veiðar út af austfjörðum og landar því á Neskaupstað landaði skipið í dag um 90 tonnum af blönduðum afla eftir um 6 daga veiðiferð.
  • 1
Flettingar í dag: 18
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 177
Gestir í gær: 63
Samtals flettingar: 369677
Samtals gestir: 121452
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 04:29:54