16.05.2012 10:19
Trausti EA 98
©Siggi Davíðs
©Siggi Davíðs
Þetta er fallegasti strandveiðibáturinn að mínu mati.Trausti EA 98 í Sandgerðisbót á dögunum.
Skrifað af Sigga Davíðs
15.05.2012 20:32
Kiel og Gerda Maria.
©Hannes Kristjánsson
©Hannes Kristjánsson
Skrifað af Sigga Davíðs
15.05.2012 20:23
Polar Nanoq GR 15 - 203
©Hannes Kristjánsson
©Hannes Kristjánsson
Skrifað af Sigga Davíðs
08.03.2012 18:14
Bryggjurúntur.
Smá bryggjurúntur og myndaði rennileg og falleg skip.Finnst mér þó Snæfellið EA bera af öðrum skipum fallegar línur í því skipi listasmíð.
Skrifað af Sigga Davíðs
08.03.2012 18:07
Wilson Hawk
Þessi kom til Akureyrar í gærdag Veit ekkki hvort hann hafi verið að lesta eitthvað eða losa.
Skrifað af Sigga Davíðs
29.01.2012 11:41
Oddeyrin EA 210
Togarinn Oddeyrin hélt til veiða frá Akureyri í gærdag smellti af nokkrum myndum.Skipið landaði á Akureyri sínum fyrsta túr og var aflaverðmæti um 130 milljónir.Síðasta ár gekk mjög vel hjá þeim voru þeir með aflaverðmæti yfir 2 milljarða sem er mjög gott.


Skrifað af Sigga Davíðs
28.01.2012 10:31
Eyborg ST 59
Rækjutogarinn Eyborg hélt til veiða frá Akureyri í gærdag en skipið hefur legið við bryggju frá því fyrra.





Voru skipverjar að græja skipið í gær þegar að ég átti leið um.Rak ég upp stór augu er ég mætti Þorgeiri Bald einum fremsta skipaljósmyndara landsins þar um borð.Tjáði Þorgeir mér að hann væri kominn heim aftur um borð í Eyborgu
.
Eyborg ST 59
Kóngurinn Mættur.
Hér skal sko tekið á því að poka rækju.
Löng er hún
Klár í slaginn og fær góðar kveðjur.
Skrifað af Sigga Davíðs
27.01.2012 16:21
Norma Mary
Frystitogarinn Norma Mary kom til hafnar á Akureyri í gær eftir miklar endurbætur.Skipið var lengt um 14 metra og sett í það ný aðalvél.Skipið mun vera á Akureyri í einhvern tíma þar sem fiskvinnslu búnaður verður settur um borð.Er það samdóma álit okkar Binna Arnars að þeir sjást ekki svona flottir á stakksfirði en það er nú meira grín en í allvöru sagt.
Skrifað af Sigga Davíðs
18.01.2012 12:44
Löndun á Neskaupstað.
©Siggi Davíðs
Björgvin EA-311 við bryggju á Neskaupstað En skipið landaði sínum 3 túr á þessu ári.Björgvin hefur verið við veiðar út af austfjörðum og landar því á Neskaupstað landaði skipið í dag um 90 tonnum af blönduðum afla eftir um 6 daga veiðiferð.
Skrifað af Sigga Davíðs
31.12.2011 12:32
Áramótakveðja
Sendi landsmönnum öllum hugheilar nýárskveðjur.Megi árið 2012 verða ykkur öllum gott.Þakka fyrir inlit á þessa síðu á árinu sem senn er að líða.
Skrifað af Sigga Davíðs
24.12.2011 12:13
Jólakveðja
Sendi landsmönnum öllum hugheilar jólakveðjur og með þökk fyrir innlit á þessa síðu
Jólakveðja 123.is/siggi
Skrifað af Sigga Davíðs
26.09.2011 22:07
Björgvin EA kominn úr slipp.
Samherjatogarinn Björgvin EA 311 Nýkominn úr slipp og eru skipverjar byrjaðir að græja skipið til veiða.Áætlað er að Björgvin haldi til veiða upp úr miðri viku og fer skipið á ísfisk.Skipstjóri á Björgvin er Angantýr Árnason.
Skrifað af Sigga Davíðs
23.09.2011 14:48
Oddeyrin með mettúr.
Mynd Þorgeir Baldursson 2011
Samherja togarinn Oddeyrin kom til hafnar á Akureyri í gærkvöldið með mettúr.Skipð var með fullfermi af frosnum afurðum uppistaðan grálúða og er aflaverðmætið um 206 milljónir.Skipið var um 20 daga í veiðiferðinni og skipstjóri var Pálmi Hjörleifsson 1.stýrimaður var Árni R Jóhannesson.Skrifað af Sigga Davíðs
- 1
- 2
Flettingar í dag: 80
Gestir í dag: 34
Flettingar í gær: 92
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 370394
Samtals gestir: 121786
Tölur uppfærðar: 23.5.2012 19:22:54
